Brautryðjandinn - ævisaga Þórhalls BjarnarsonarBoðað er til hátíðar sunnudaginn 23. október 2011 klukkan 16 í Safnaðarheimili Grensáskirkju í tilefni útgáfu bókar Óskars Guðmundssonar, rithöfundar, “Brautryðjandinn”, sem fjallar um Þórhall Bjarnarson og fjölskyldu hans. Þórhallur var kennari, ritstjóri, formaður stjórnar Búnaðarsambands Íslands, bæjarstjórnarfulltrúi í Reykjavík, alþingismaður og biskup.
Dagskrá: “Brautryðjandinn” er alls 552 blaðsíður, studd heimildum bréfasafna og rita, sem rithöfundurinn hefur vandað svo til, að saman fer spennandi lestur og sagnfræðileg geymd. Bókin verður seld á sérstöku kynningarverði þennan útgáfudag með 2000.- kr afslætti, en fullt verð bókarinnar er kr. 6.890,- |